Lagabreytingar samþykktar – Ráður til staðar

Alþingi hefur samþykkt breytingar á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna sem fela í sér að núverandi fyrirkomulag jafnlaunavottunar fellur niður. Í staðinn taka við nýjar kröfur um reglubundna skýrslugjöf um kynbundinn launamun og framkvæmd launagreininga.

Vinnustaðir bera áfram ábyrgð á að tryggja jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf. Jafnframt þurfa þeir að geta sýnt fram á að launaákvarðanir byggist á málefnalegum og kynhlutlausum viðmiðum, að starfaflokkun sé rétt og að gripið sé til aðgerða ef óútskýrður launamunur kemur í ljós.

Ráður mun áfram veita fyrirtækjum og stofnunum faglega ráðgjöf á þessu sviði. Þjónustan tekur meðal annars til launagreininga, starfaflokkunar, innri úttekta, skýrslugerðar, úrbótaáætlana og fræðslu fyrir stjórnendur og starfsfólk.

Auk þess býr Ráður yfir víðtækri reynslu af úttektum og gæðastjórnun og aðstoðar áfram fyrirtæki og stofnanir við að byggja upp skilvirka verkferla, innra eftirlit og stöðugar umbætur. Þannig styðjum við viðskiptavini okkar bæði við að uppfylla lagakröfur og efla faglega stjórnarhætti og gæði í rekstri.

Markmiðið er að styðja vinnustaði við að uppfylla nýjar lagakröfur á skilvirkan hátt og tryggja að gæði, gagnsæi og fagleg stjórnun séu áfram í forgrunni.

Hægt er að bóka ráðgjöf beint í gegnum bókunarkerfi á heimasíðu Ráðar eða hafa samband með tölvupósti til að fá frekari upplýsingar og ráðgjöf við hæfi hverju sinni.

Scroll to Top

BÓKA RÁÐGJÖF

Loading...