Um okkur
UM OKKUR
Ráður sérhæfir sig í ráðgjöf og fræðslu í tengslum við stjórnunarkerfi og stefnumótun. Helstu verkefni okkar felast í að leiða fyrirtæki og stofnanir í gegnum innleiðingu, þróun og umbætur á stjórnunarkerfum í samræmi við viðurkennda staðla og bestu starfshætti.
Stefna Ráðar er að styðja við skipulagsheildir sem vilja byggja upp öfluga stjórnarhætti, skýra verkferla og menningu stöðugra umbóta. Við leggjum áherslu á lausnir sem tryggja skilvirka innleiðingu og sjálfbæra virkni stjórnunarkerfa til lengri tíma.
Einnig tökum við að okkur að sinna mannauðsmálum fyrirtækja og stofnana frá a–ö, tímabundið eða til frambúðar, og veitum stjórnendum faglegan stuðning í þeim málaflokki.
TEYMIÐ


Framkvæmdastjóri og eigandi
Anna Beta er með BS í umhverfis- og byggingarverkfræði og MS í byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands. Hún starfaði við gagnagreiningu og ráðgjöf á meðan námi stóð og hlaut nemendaverðlaun Steinsteypufélags Íslands fyrir lokaverkefni í mastersnámi. Hún starfaði áður við verkfræðilega ráðgjöf og hefur sinnt margvíslegum verkefnum á sviði greininga og gagnaúrvinnslu með áherslu á burðarþolsfræði. Anna Beta situr í stjórn faghóps um gæðastjórnun og ISO staðla hjá Stjórnvísi ásamt annarri stjórnarsetu.


Stjórnarmaður og eigandi
Falasteen er með BS gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst og MPM gráðu í verkefnastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík. Falasteen starfaði hjá Eimskip þar sem hún innleiddi og hannaði jafnlaunakerfi, þróaði samhliða launagreiningarkerfi sem gefur mynd af stöðu kjaramála á hraðan og skýran hátt. Einnig stýrði hún stefnumótun og hafði umsjón með ESG (Enviromental social governance) skýrslum. Áður starfaði hún hjá Hagstofu Íslands og sjá meðal annars um innleiðingu fyrirtækja og stofnana í launarannsókn Hagstofunnar.


Sérfræðingur í jafnréttismálum
Freyja er með BS í viðskiptafræði frá Copenhagen Business School í Kaupmannahöfn, MA í kynjafræði frá Central European University í Búdapest og viðbótardiplómu í hagnýtri jafnréttisfræði frá Háskóla Íslands. Hún vann við innleiðingu á kynjaðri fjárhags- og starfsáætlun hjá Reykjavíkurborg og og vann þar sérstaklega að verkefnastýringu jafnréttismats þvert á öll svið borgarinnar. Freyja situr í stjórn félagsins Femínísk Fjármál sem vinnur að því að efla þekkingu á samspilinu milli kynjajafnréttis og fjármála.


Stjórnarformaður og eigandi
Gyða Björg er með BS í rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hún byrjaði að kynna sér jafnlaunastaðalinn þegar hann var lagður fram sem frumvarp að staðli árið 2012, aðstoðaði fyrirtæki við uppsetningu á jafnlaunakerfi fyrir jafnlaunavottun VR árið 2013 og fékk Tækniþróunarsjóðsstyrkt til að þróa launagreiningahugbúnað árið 2014.
VIÐSKIPTAVINIR OG FYRRI VERKEFNI











