fbpx

Jafnlaunavottun eða jafnlaunastaðfesting?

Lög um jafnlaunavottun tóku gildi 1. janúar 2018 og kveða á um að öll fyrirtæki með yfir 25 starfsmenn skuli hljóta jafnlaunavottun. Með uppfærðum jafnréttislögum (150/2020) kom inn nýtt ákvæði um fyrirtæki sem eru af stæðrðargráðu 25-49 starfsmenn. Í þessari samantekt eru teknar saman helstu breytingar á kröfum fyrir þessa minnstu aðila sem geta farið í gegnum jafnlaunastaðfestingu.

Helsti munur felst í kröfum um stýringu

Helstu verkefni má brjóta í 4 yfirþætti, þ.e. stefnu og áætlanir, starfaflokkun, launagreiningu og rýni stjórnenda.

Að hljóta jafnlaunastaðfestingu er umfangsminna verkefni en að hljóta jafnlaunavottun þar sem ekki er krafa um að uppfylla öll skilyrði Jafnlaunastaðals ÍST 85:2012, m.a. varðandi skjalfestingu og skilgreiningu á verklagsreglum.

JafnlaunastaðfestingJafnlaunavottun
Byggir ekki á jafnlaunastaðliByggir á kröfum jafnlaunastaðals ÍST 85:2012
Jafnréttisstofa úttektaraðili á kröfumÚttekt hjá faggildri vottunarstofu
Ekki leyfi til notkunar jafnlaunamerkisLeyfi til notkunar jafnlaunamerkis
Fyrir vinnustaði sem eru minna en 50% í eigu ríkisins og starfa 25-49 starfsmennFyrir alla vinnustaði þar sem starfa 50 starfsmenn eða fleiri

Til að fá frekari upplýsingar geturðu bókað 15 mínútna kynningarfund með ráðgjafa

Loading...
Scroll to Top

BÓKA RÁÐGJÖF

Loading...