fbpx

Hátíðarkveðja

Nú líður senn að árslokum sem þýðir að frestur er runninn upp fyrir öll fyrirtæki með yfir 25 starfsmenn til að ljúka jafnlaunavottun eða jafnlaunastaðfestingu.  Áramótin marka því ákveðin tímamót í jafnréttismálum á Íslandi.

Síðan 2017 höfum við kappkostað við að leysa þetta verkefni með okkar viðskiptavinum og dregið ómældan lærdóm af því samstarfi.

Áskoranir á nýju ári fela í sér að útvíkka þessa vinnu og fjalla um jafnrétti í víðara samhengi. Við höfum því eflt okkur í nýsköpun og þróun á þjónustu í tengslum við fjölbreytileika með teymi sérfræðinga. Þær Freyja, Sólveig Rós og Aðalheiður unnu frábæra vinnu á þessum vettvangi sem við erum spennt að kynna nánar.

Við óskum öllum gleði og friðar yfir hátíðarnar og hittumst úthvíld á nýju ári.

Bestu kveðjur,

Anna Beta, Falasteen og Gyða Björg

Scroll to Top

BÓKA RÁÐGJÖF

Loading...